efnastelpan
Myndasíða
21.11.2007 22:44:09 / bögg.is

Samt farin

Þó síðasta færsla hafi birst.

Finnst eg bara einhvern vegin hafa þroskast frá blog.central. Þetta var bara ekki að ganga upp lengur undir restina. Sambandið hékk á bláþræði...

elsasif.bloggar.is  Tjékkit!


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 12:54:53 / bögg.is

Hér er allt við sama heygarðshornið

Lítið nýtt í fréttum, skítkalt og nóg að gera. En listin hennar systur minnar var nú alveg að gera sig svo ég er ansi langt komin með verkefnin á þeim lista.

Búið að fara í sprautu, kaupa jólagjafir og senda, búið að skrifa undir samningin. Nú er bara eftir að klára prófin og flytja. Skiptum þessu temmilega jafnt á milli okkar ég og Krissi. Hann flytur og ég klára prófin tíhí.

Nei hann þarf að fara í próf sjálfur, en þar sem hann er búinn miiiiikið fyrr en ég þá fær hann að eyða restinni af desember í flutning. 

Síðustu 3 færslur sem ég hef skrifað hingað inn hafa bara horfið jafnóðum, þó "skráning á færslu hafi tekist".

Svo ef þessi birtist ekki þá mun ég segja blog.central upp og finna mér eitthvað annað.

Knús og kossar,

Elsa 


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 10:12:16 / bögg.is

Stress

Í dag er ein vika og 6 dagar í  fyrsta próf.

Í dag eru þrjár vikur og 2 dagar þar til við (Krissi) flytjum í nýju íbúðina.

Í dag eru 2 dagar þar til við skrifum undir samningin.

Í dag er vikar þar til við erum orðin of sein í sprautur fyrir Malasíuferðina um jólin.

Í dag fækkar hóteltilboði í Singapore og Kuala Lumpur eins og fyrri dagin, og við erum enn ekki búin að panta hótel.

Í dag eigum við enn eftir að kaupa hverja einustu jólagjöf og senda til íslands.

Í dag eru 2 vikur þar til líkurnar á því að pakkarnir komist heim fyrir jól orðnar valtar.

Og hér sit ég og blogga í stað þess að gera eitthvað af því sem þarf!

Eins og ég segi, kann ekki að planleggja og collapsa bara eins og  spilaborg undan svona álagi.. kem engu í verk af stressi en er samt með svo mikið samviskubit yfir því hvað ég er búin að gera lítið vegna þess að pressan undan stressinu er að drepa mig.

Vítahringur!

Andlegur stuðningur óskast 

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 21:28:34 / bögg.is

Takk fyrir hamingjuóskirnar!

Heyriði, var ég búin að segja ykkur frá því þegar kveikjarinn sprakk og það suðaði í eyranu í einn og hálfan dag á eftir?

Ekki?

Ég er nefnilega með nýja sögu, en ætla að segja ykkur þá gömlu fyrst.

Við erum með svona kamínu í stofunni sem er óttalega kósý. Ég nota hana mikið til að hita upp íbúðina og orðin flinkari en skáti í að kveikja eld.
Ég er þó ekkert minni klaufi enn áður. Einu sinni þegar ég kveikti á kamínunni þá lagði ég í hugsunarleysi mínu kveikjaran upp á hana.

Fyrir þá sem ekki vita þá er kamína úr einhverju svakalega þykku málmdæmi sem virkar bara eins og venjulegur ofn þegar viðurinn hefur hitað hana upp. Þar af leiðandi er HARÐBANNAÐ að leggja nokkurn skapaðan hlut ofan á hana. Það lærði ég snemma, þegar ég setti kertastjaka þarna uppá til skrauts og kertið bráðnaði og lak niður eftir allri kamínunni.

En allavega, ég var ekki að hugsa og setti bara kveikjaran uppá. Svo fór ég að læra, fékk mér að borða, var búin að stappa rækilega af viði inn í ofnin inn á milli svo það var orðið sjóðheitt hér inni. Markmiðið var að geta gengið um á nærbolnum.

Svo ákvað ég að fara að þrífa. Ég byrjaði á að ryksuga og ryksugaði herbergið, svo ganginn, svo baðið, svo eldhúsið, og síðast stofuna. Akkúrat á meðan ég var að ryksuga í kring um kamínuna heyrði ég hrikalegan hvell. Láki hrökk upp og stóð og starði á mig. Ég heyrði bara suð og stóð alveg stjörf.
Hvað gerðist eiginlega? HVaðan kom þessi hvellur, og af hverju er mér illt í hægri upphandleggnum?
Hugsaði fyrst; jarðskjálfti. Eða einhver að sprengja hér rétt fyrir utan (norðmenn ELSKA að sprengja)?

Svo sá ég hvítt plast á gólfinu. Ekki á einum stað heldur úti um allt. Og þá fattaði ég hvað hafði gerst. Þarna var ég heppin að ég fékk bara eitt plaststykki í handlegginn því ég var eins nálægt kamínunni og hægt var. Er ennþá að finna restar af kveikjaranum í íbúðinni.

En forðast brennt barn eldinn?

Ekki öll börn.

Kveikti í kamínunni í dag. Fór að finna væga brunalykt klst síðar. Kíkti fram, sá ekkert að en fannst þetta vera af kamínunni. Eða olíuofninum sem við vorum að kaupa og er víst stórhættulegt fyrirbæri. En það var ekkert að.

Lyktin ágerðist næstu 2 tímana og tvisvar enn gekk ég fram og spáði í hvað þetta væri.

Svo kom að því að ég áttaði mig á að það var svart ský inni í íbúðinni. Fór enn eina ferðina fram. Og þá fyrst sá ég dagblaðið sem lá uppá kamínunni. 

Vúúps, hugsaði ég og reif það ofan af ofninum og henti því ofan í kassan með öllum hinum dagblöðunum. Sá samt strax eftir því, vegna þess að þá fyrst byrjaði að loga í dagblaðinu. Og flestir hafa séð hvernig dagblað brennur:
Hratt og glatt.

Ég reif upp blaðið aftur, stappaði ofan á glóðinni sem datt niður á gólf en sá svo að ekki væri langt í að eldurinn næði í hendina á mér, svo ég hljóp með dagblaðið inn í eldhús og kastaði því í vaskinn. ÞAr logaði það þar til ég náði að skvetta nægu vatni yfir það allt.

Væri heldur lélegt að kveikja í húsinu svona stuttu áður en við flytjum.

Spurning hvort við þurfum ekki að tryggja okkur eitthvað áður en við flytjum í nýju gersemina... 


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 10:10:53 / bögg.is

Gull

Gullfalleg íbúð með gullfallegu eldhúsi, gullfallegum svölum, gullfallegu baðkari.

Eftir mánuð flytjum við þangað.

Gullíbúðin er okkar! 

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 10:22:30 / bögg.is

Með magasár og kúk í buxum..

Fann íbúð. Alveg geggjaða. Flottasta hingað til.

Skoðuðum í gær og settum tilboð í hana. Settum frestin til kl 9 í morgun.

Fekk hringingu 2min í 9 frá fasteignasölunni um að annar hefði lagt inn boð, 20.000nok hærra.

Frestur til tíu. Kortér í tíu hringir fasteignasalan aftur og ýtir á mig, segist þurfa að fá svar innan 5 mín. Held persónulega að hún hafi engan rétt á því, fattaði það eftir á.

Settum boð 50.000NOK yfir síðasta bjóðanda. Hann gaf sig. Eigandinn sagði nei. Fannst þetta of lágt. Við hækkuðum um 50.000NOK í viðbót. Frestur til 12. Klukkan er nú kortér yfir 11.

ÉG er að springa úr spenningi og stressi og eiginlega bara orðin hálf pirruð.

Eldhus daudans

ÉG er flutt inn í höfðinu, ekki í fyrsta sinn, og verð svo svekkt ef þetta gengur ekki eftir!

Hver getur látið svona eldhús frá sér fara?


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.11.2007 11:18:33 / bögg.is

Smá gullspjall

Gulldagurinn var strangur dagur. Ég þurfti að sjálfsögðu að lakka á mér allar neglurnar 20 í hárauðum lit til þess að fullkomna pæjulætin. Eina ástæðan fyrir því að það var vesen er sú að ég kann ekki að naglalakka mig. Svo ég sat og lakkaði og lakkaði og lakkaði og lakkaði þar til loksins var þetta orðið almennilegt. Þá var ég búin að fara með Láka í pössun.

Vitandi að eftir leikinn yrði lítill tími til að athafna sig, fór ég í pæjugallann fyrir leikinn. Nema ég skellti mér í þykkri leggings og stígvél. Fór svo í pæjuvetrarkápuna mína sem gullið mitt gaf mér í jólagjöf, og ég fæ aldrei að nota af því hér er alltaf bara rigning, og setti á mig Brann trefil.

Leikurinn var þrælskemmtilegur og Brann rúllaði yfir Viking. Það var líka ótrúlega gaman að hafa Krissa með á leik einu sinni. Rúnni, Baddi, Nonni og Jón Atli skemmtu sér held ég ágætlega á leiknum, enda ekki erfitt að hækka væntingarnar þar sem þeir komu síðast á tapleik á móti RBK.

Robbie, skotinn í liðinu var líka í áhorfendastúkunni, íklæddur skoska þjóðbúningnum. Mér fannst hann alveg ótrúlega flottur!

Að leik loknum fór Krissi niður í klefa þar sem allt liðið klæddi sig í gullskyrturnar og á meðan var komið upp sviði á miðjum vellinum, ásamt flugeldastatífum og öðru skemmtilegu. Stemningin á vellinum var rosaleg.

Svo tóku þeir á móti gullinu hver og einn við gríðarleg fagnaðarlæti, og allir áhorfendurnir "bauluðu" "öööööörn, ööööörn, ööööörn" þegar Krissi tók við sínu gulli. Bikarinn gekk síðan manna á milli og klökkur þjálfarinn þakkaði áhorfendum stuðninginn í átt að gullinu.

Eftir þetta hlupum við heim þar sem ég fór í þynnri leggings, eldrauðu opnu lakkskóna sem ég keypti fyrir brúðkaupið hennar Aníku systur, og setti hárauðan varalit á varirnar, í stíl við allt hitt.

Við fórum niður á völl aftur þar sem liðið og konur borðuðu saman ágætis mat. Svo var okkur smalað út í rútu sem átti að keyra okkur niður í bæ. Ég stóð af einhverjum ástæðum skyndilega með hálffulla kampavínsflösku í hendinni og drakk af stút, eins og sönnum celebrity sæmir :haha: .  Við komum niður í bæ þar sem 30.000 manns stóðu í hóp og fylgdust með Gull liðinu koma keyrandi í gull rútunni. Þeir fóru upp á svið við mikin fögnuð, sungu Tjukk og feit og full trekk í trekk, og Brann hljómsveitin söng með þeim.

Að því loknu fórum við á Mood. Okkur tókst að smygla Jóni Atla inn, sem er bara 16. Aldrei hef ég upplifað grúpppíufýling fyrr en þarna. AF því yfirvöld í noregi eru alveg crazy harðir á aldurstakmörkum þurfti ég að standa með Jóni Atla fyrir framan rútuna og handlanga drenginn yfir þangað þegar Krissi kæmi út. Þarna stóð ég í klessu, umkringt brjáluðum grúpppíum og gæjum sem öskruðu og hrópuðu og ruddust og teygðu hendurnar í átt til hetjanna sinna. Mér fannst ekkert gaman að vera grúppía og tel daga mína talda í þeim bransa.

Mood var stappfullt av fólki svo við fórum á rólegri stað, þar sem liðið er með VIP herbergi. Það kom sér vel því þar er bar og þá loks gat maður keypt sér eitthvað til að svala þorstanum, án þess að rynni af manni við að bíða eftir afgreiðslu.

Rúnni fór því miður allt of snemma heim, en honum er fyrirgefið það af því að hann er svo skynsamur. Hefði hann ekki haft svona góða ástæðu þá hefði ég orðið súr.  

Strákar, þið eruð hjartanlega velkomnir aftur! Það var ótrúlega gaman að hafa ykkur. En það verður Grandiosa næst, ekki Dolly! ok? 

 

Nú er ég ein heima og hálf lost eitthvað. Ég er heimsins verst í að planleggja, en ég er samt háð því að planleggja. Þó ég fari sjaldnast eftir eigin plönum. Ég var búin að plana fyrstu fríhelgina hans Krissa í heilt ár. Hún átti að vera núna. Hann er meiddur og átti því að vera heima á meðan Liðið færi til Tromsö. Vá hvað ég hlakkaði til. Ætluðum að elda fullt af góðum mat, fara að skokka saman, jafnvel kíkja í fjallatúr. 

Hálftíma áður en rútan fór frá vellinum hringir þjálfarinn og segir Krissa að pakka. ANnar af tveimur varamönnunum í hans stöðu er veikur og því verða þeir að hafa Krissa með sem Backup...

Svakalega súrt maður! Hefði verið skömminni skárra ef ég hefði búist við því að hann færi, því þá hefði ég verið komin með eitthvað svakalega lélegt plan fyrir helgina ein :haha:

Jæja þar hafiði það.

Ég á by the way ógó flotta mynd af mér  að kyssa bikarinn fræga. Hvað ætli ég geti selt hana dýrt á Ebay???  


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 20:04:18 / bögg.is

Seriegull

Tjukk og feit og full, og seriegull,

Tjukk og feit og full og seriegull,

tjukk og feit og full,

tjukk og feit og full,

tjukk og feit og full og seriegull!! 

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 09:08:17 / bögg.is

En nú er tapið gleymt..

Í gær urðu Krissi og co meistarar, og það af því einu saman að sitja í sófanum. Sem var svolítið skrítin tilfinning.  Og þrátt fyrir að gullið fékkst á svona skringilegan hátt, í stað þess að hafa fengist úti á vellinum eftir vel spilaðan fótboltaleik og blóð, svita og tár, þá fagnaði bærinn samt.+

Það voru þónokkrir Brann aðdáendur á Viking - STabæk leiknum, í Brann treyjum, sem sungu Brann söngva.

Þeir sem höfðu látið sér nægja að sitja heima og fylgjast með í sjónvarpinu, ruku út úr húsi og á rúntinn þar sem bílflauturnar voru límdar niður í stýrið. Fullt af þeim keyrðu niður á völl til að hitta leikmennina, sem áttu að hittast ef yrði gull og skála í kampavíni. Flugeldum var skotið upp og í garðinum sem alltaf er svo friðsæll og hljóður eftir kvöldmat, ómaði af bílflautum, brannsöngvum og öskrum, í klukkutíma eftir að gullið var komið á sinn stað. Heim.

Nágranni minn og vinir hans ruku upp á hæðina okkar með skaðræðisöskrum, börðu á hurðina og opnuðu kampavín í forstofunni hjá mér, sem flæddi yfir öll fallegu leðurstígvélin mín... En ég fyrirgaf honum það.

Takk fyrir kveðjurnar :haha:

Loksins, LOKSINS, á sunnudaginn fá Bergenbúar að fagna gullinu langþráða. 


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.10.2007 21:22:48 / bögg.is

AAlesund - Brann...

Tapið í kvöld var sérstaklega sárt...

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 12:47:06 / bögg.is

Sally Hansen, ég elska þig!!

Ég er með ofboðslega viðkvæmar og lélegar neglur og hef alltaf verið í baráttu við að ná þeim, og halda þeim, lengri enn fingurgómarnir.

Baráttan hefur hingað til verið vonlaus, þrátt fyrir að ég hef fylg tískustraumnum í naglaherðun út í eitt. Hef prófað þetta allt; trend, nivea og hvað eina. Ekkert hefur virkað. Annað hvort klofna þær eða byrja að rifna frá hliðunum, og það er alveg hrikalega sárt þegar maður festir svo rifna partinn í peysuna sína og allur efri hlutinn rifnar af. Þá er maður með nögl sem nær upp að hálfum fingurgóm.

Mamma hefur lengi notað sama lakkið. En það hefur aldrei heillað mig. Ég er svo upptekin af útliti og litasamsetningu að glasið fór hreinlega í taugarnar á mér. Eitthvað pastellbleikt lakk með ljótum eighties gráum tappa. Ég var viss um að þetta væri eitthvað Bónus naglalakk.

Svo síðast þegar ég var heima vantaði mig lakk svo ég stalst í þetta hjá mömmu. Daginn eftir var ég í apótekinu og sá þá sama lakkið og mamma notar. EN það kostaði alveg 1300 krónur!!  éG var að sjálfsögðu enga stund að skipta um skoðun á lakkinu, þetta var greinilega ekkert Bónus lakk!

Ég viðurkenni fúslega að ég er eins mikill íslendingur í mér og hægt er að vera. Ég hugsa:
Hátt verð = mikil gæði
Ég fjárfesti í einu slíku glasi, sem reyndist vera frá Sally Hansen.

Síðan ég kom heim frá íslandi hef ég notað það reglulega, og árangurinn er hreint ótrúlegur (sagði konan í sjónvarpsmarkaðnum alltaf)! Neglurnar eru langar og sterkar og fallegar.

Að sjálfsögðu fæst þetta ekki í Noregi, en það gerir ekkert, því magnið í glasinu haggast ekki, sama hversu oft ég hef notað það!

Það er svo geggjað að vera pæja, það er uppáhaldið mitt! 


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.10.2007 14:23:53 / bögg.is

I am impressed!!

Ég er með Condux "stóra bróður" Láka í pössun. Mælti mér síðan mót við nágrannan, sem á leitarhund, fyrir neðan Lövstakken.
Við gengum upp fjallið, hundarnir náttúrulega að eypa af gleði með langan og skemmtilegan túr. Svo vorum við byrjuð að labba niður aftur, annars staðar enn við komum upp samt.
Þá áttaði ég mig á því að húfan mín var ekki lengur í vasanum. Ég hafði misst hana, who knows where. ÉG hafði samt nokkra hugmynd um hvar líklegast væri að hún hafi dottið, svo við gengum annan stíg sem leiddi okkur á stað ekki allt  of langt frá þeim sem ég taldi mig hafa misst húfuna. Svona 200 metrum áður en við vorum komin af stígnum og inn á svæðið þar sem ég hélt að húfan væri, kom leitarhundurinn galvösk og töltandi niður fjallið á móti okkur, með húfuna mína!

Hún hafði fundið hana (hundarnir voru náttúrulega allir lausir og hlupu alltaf spölkorn á undan) og greinilega svo vel meðvituð um vinnuna sína að hún kom hlaupandi með hana til okkar.

Ég skil að hún eigi að geta fundið manneskjur, sérstaklega ef hún fær eitthvað sem lyktar eins og viðkomandi týnda manneskja. En að hún finni húfuna mína, finnst mér ekkert smá merkilegt!

 Stórmerkilegur hundur! Fínt að fara í fjallaferðir með svona hund sem maður veit að bjargar manni ef illa fer hehe.


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.10.2007 11:26:09 / bögg.is

Sprautunál í skólatöskunni minni

Áttaði mig á því þegar ég var að setjast inn í bílinn í dag eftir skóla, þegar ég lagði skólatöskuna í aftursætið, að það stóð sprautunál út úr botninum. Nálin sjálf var náttúrulega á kafi í töskunni, það var brúni feiti endinn sem stóð út, þessi sem er settur á sprautuendan.

Það var frekar ógeðslegt. Veit ekki hvaðan þessi nál kom, en hún kom alla vega ekki af sjúkrahúsinu. Mjög líklega hefur hún fest í skólatöskunni minni í Bergen Storsenter einhvers staðar, því þar halda allir alkóhólistarnir og dópistarnir til, og þar lagði ég töskuna á jörðina oftar en einu sinni. Hún var svo þung. 

Ég fór í tvöfaldan plastpoka áður en ég dró hana út, vafði pokanum margoft utanum hana og setti hana svo í þykkan poka. Svo í ruslið.

Svo er ég komin með upp í kok á þjónustuólyndum og lötun norðmönnum. Veit alveg að svoleiðis einstaklingar finnast um allan heim, en þeir virðast margir hafa fundið samastað hér í Noregi! Óþolandi svona fólk!

Héðan í frá mun ég ganga í burtu og neita viðkomandi um viðskipti mín þegar ég lendi á svona einstaklingi. Gerði það tvisvar í gær.

Svona pakk, sko!


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 15:17:28 / bögg.is

Enn einn sigurinn í höfn

Leikurinn var að þessu sinni á mánudegi. Á Festplassen, stórt opið svæði í miðbænum þar sem haldnir eru tónleikar, var slegið upp stórskjá þar sem 5000 manns sem ekki höfðu fengið miða á völlinn fylgdust með leiknum.

Eftir leikinn, sem virtist ætla að fara 1-1 alveg fram á framlengingu þegar við skoruðum 2 í viðbót, stappfylltust barir og skemmtistaðir í bænum af rauðklæddu fólki sem brosti hringinn.

Í gær fór síðan krissi með landsliðinu til íslands og fer síðan þaðan eitthvert annað. Kemur heim eftir rúma viku. hann kemur á fimmtudegi, flýgur svo til Aalesund á laugardegi held ég, þar sem þeir spila næstsíðasta útileikinn. Vinni þeir hann kemur til með að vera húllumhæ hjá leikmönnum og frúm :haha: Guðrún er búin að fá barnapíu fyrir fram, just in case, eða var það ekki annars? Spurning um að taka frá barnapíu helgina þar á eftir líka ef þeir fá gullið þá, þá verðum við að lyfta okkur upp líka hehe. Veit ekki hvort Kolla er búin að fá barnapíu samt...

Böddi er enn óseldur, það eru margir búnir að biðja um hann, en af einhverjum ástæðum hefur hver ogeinn þurft að afpanta hann af einni eða annarri ástæðu. Þetta er náttúrulega hálf spooky af því hann er fallegasti hvolpurinn í stóðinu og þess vegna held ég að þetta sé destiny. mér er bara hreinlega ætlað að kaupa hann.

Nennir einhver að segja kærastanum mínum það? 


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 13:15:38 / bögg.is

Prison Break

Er einhver búin að sjá fyrstu þættina af seríunni? Ætla ekkert að koma með einhverja "blúbbera" og eyðileggja fyrir þeim sem ekki hafa séð þættina. EN....

Er þetta ekki orðið svolítið sjúkt og sóðalegt allt saman? Og ætlar Snowflake greyið að eyða restinni af ævi sinni í að brjótast úr hverju fangelsinu af fætur öðru?

Og hverjum datt í hug að búa til þetta ímyndaða og ógeðslega fangelsi? Ætlar einhver að reyna að ljúga því að mér að svona hlutir séu til? Eða er PB farið úr raunveruleikanum í bullið?

Ekki það að það er alveg gaman af þessum þáttum. En ég er bara búin að sjá þrjá fystu þættina í nýjustu seríunni og skil eiginlega bara ekki neitt hvað er að ske.... 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 22